Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vel þjálfað fylgdarlið Berlusconis

 

Þegar NATO fundurinn var haldinn í Reykjavík í maí 2002. Voru þar saman komnir mörg fyrirmenni eins og t.d. Robertson lávarður þ.v. framkvæmdastjóri NATO, Collin Powell þ.v. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Joscha Fischer þ.v. utanríkisráðherra þýskalands, Jack Straw þ.v. utanríkisráðherra Bretlands, Halldór Ásgrímsson þ.v.  utanríkisráðherra o.fl. 

 

Fundurinn fór að mestu fram í stóra salnum í Háskólabíói. Ásamt Háskólabíói, voru húsakynni Hótel Sögu og Hagaskóla einnig undirlögð vegna fundarins. Á Hótel Sögu gistu nokkrir þessara þjóðaleiðtoga á meðan á NATO fundinum stóð. Einnig snæddu NATO gestirnir í Súlnasal Hótels Sögu. Byggingarnar þrjár voru allar afgyrtar ásamt því að mikið löggæslulið vaktaði svæðið undir alvæpni. Þurfti sérstaka passa til að komast inn á svæðið. Vinnu minnar vegna, var ég mikið á hótelinu og komst þá ekki hjá því að rekast stöku sinnum á áðurnefnda kappa, sem komu flestir ákaflega eðlilega fyrir sjónir. Kom manni þó á óvart hvað sumir af þessum mönnum voru lágir í loftinu að vart stóðu þeir fram úr hnefa eins og t.d. lávarðurinn.

berlusconiEn einn þessara þjóðhöfðingja var "stór" þó hann væri lágur vexti. En það var Berlusconi þ.v. forsætis- og utanríkisráðherra Ítalíu. Mér er það mjög minnisstætt þegar Berlusconi gekk valdmannslega inn í hótelmóttökuna, af einum fundinum í Háskólabíói, að þar fór ekkert á milli mála hver væri að koma í hús. Í kringum þennan litla mann með stóra Egóið var hjörð lífvarða í dökkum jakkafötum, með dökk gleraugu og eyrnaplögg. Berlusconi, sem var með  ljósan skósíðan frakka með loðfóðri í boðungunum tiltan á axlirnar án þess að vera með hendur inn í ermunum,  gekk greitt inn gólfið með lífvarðar hersinguna á eftir sér. Skyndilega yppti Ítalski forsætisráðherrann lítillega öxlum án þess að segja orð og einn af öryggisvörðunum sem fyrir aftan hann var stekkur til og tekur af honum frakkann, án þess að ráðherran svo mikið sem hægði á göngunni, eða þá að neinn í hópnum sýndu nokkur svipbrigði. Virtist bara vera hinn eðlilegasti gjörningur. Þetta var sjón að sjá. Ætli Berlusconi taki upp fyrri valdsmanns takta þegar hann kemst til valda á Ítalíu að nýju? 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Garðar bróðir að störfum sem pikkaló, þegar Robertson lávarður kom á Hótel Sögu til að vera viðstaddur NATO fundinn 2002


mbl.is Berlusconi spáð öruggum sigri í öldungadeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband